Veröld Fjördísar

mánudagur, mars 27, 2006

Síðustu nótt dreymdi mig ótrúlega raunverulegan draum. Í honum var ég að klappa gömlu kisunni minn henni Tinnu og klóra henni á hálsinum. Ég man hvað mér fannst þægilegt að finna mjúka feldinn hennar og grafa fingurnar í falleg svört hárin. Þá vaknaði ég, og fann að ég var að klóra loðna bangsanum sem var við hliðna á mér... Ekki skrýtið að mér hafi fundist þetta vera raunverulegt, en shitt hvað ég er rugluð á nóttunni! Já og til að sýna hvað þessi draumur var fjarstæðukenndur þá átti ég æðislegan kærasta líka, HAHAHAHAHAH - fyndin tilhugsun.

Er þetta að verða draumablogg?

Hey man einhver eftir barnaþáttum sem voru á RÚV hérna áður fyrr um önd... sem ég man ekki hvað heitir, bara lagið.

Nú er ég svo glaður, svo glaður, svo glaður
Svona ofsa glaður, sem aldei var ég fyrr!
Ég er svo ofsa glaður, svo glaður, svo glaður,
Ég er svo ofsa glaður, sem aldrei var ég fyrr!

eða eitthvað í þá áttina.... það var einmitt vinsælt að setja inn "r" fyrir "l" þarna í textanum á tímabili... En man einhver eftir þessu?

mánudagur, mars 13, 2006

Í morgun vaknaði ég með ekka sem ég losnaði ekki við í svona korter. Mjög furðulegt. Hafði dreymt að eitt barnið í vinnunni minni hefði dáið og ég hefði valdið því að nokkru leiti, og þrátt fyrir að hann hefði dáið á algjörlega absúrd hátt þá var þetta alveg ofboðslega sorglegt og ég hágrét í langan tíma í draumnum, og vaknaði svo eins og sagði með ekka. Spes....

Næstum mánaðarlöng blogg pása.... hef greinilega ekkert að segja þessa dagana svosem. Afmælið mitt lukkaðist vel (takk fyrir mig *knús*) og myndir frá því eru komnar á netið í albúmið mitt. Herdís er svo búin að blogga aðeins um sitt afmæli þar sem þemað var "Rokkarar og grúppíur" og án þess að hafa fleiri orð um það þá gjörsigraði ég grúppíukeppnina, enda stórglæsileg alveg! Myndir á Herdísar bloggi ef þið trúið mér ekki!

(Ps. þessi Bar 11 sko... eru ekkert nema börn þarna!)

Ekki nenni ég að blogga um fótbolta, djammið, vinnuna... voðalega er ég orðin sorgleg eitthvað. Vantar að eitthvað spennandi gerist, mér finnst ég eiga það skilið!
Annars þá bara kveð ég í bili...