Veröld Fjördísar

föstudagur, júní 13, 2003

Ég skal sko segja ykkar það, að helst ásæða þess að ég er að blogga, er því ég er lent í slappa-bloggara listanum hennar Herdísar. Mín er sko ekki sátt við það! Hérna kemur þá færsla....!

Vinna:
Mánudagur: Frí
Þriðjudagur: Rusl
Miðvikudagur: Rusl
Fimmtudagur: Rusl og þökur
Ferlega spennandi, finnst þér ekki Ragna! (Ein ótrulega bitur eitthvað, heheheh) Neinei, vinnan er búin að vera alveg ágæt bara. Fínt veður í dag og svona. Bárður lyftarastrákur kom og við vorum að spjalla í svona hálftíma - rifja upp gamlar minningar af lóðinni (og þá aðallega prakkarastrik hans, Sveppa og Gumma) og hann tók vel í að hittast öll gömlu krakkarnir í sumar!

Hvað er annars að frétta.. fór að fjörast (djamma) með Írisi sl. laugardag og tveimur vinum hennar, Kidda og Stefáni. Fórum á Hverfisbarinn, voða gaman en allt lokaði kl. 3 í bænum. Fór svo með henni og Þyrí á kaffihús á sunnudaginn í Nauthólsvíkinni og gerði ekkert meira merkilegt þá helgina held ég. Hitti Val á föstudaginn, við fórum á Identity í bíó, hún var mjög fín fannst mér. Fleh.. hvað meira... verðað fara að sofa núna, ætla i sund fyrir vinnu í fyrramálið!

þriðjudagur, júní 03, 2003

Ég lofaði Maggi víst að blogga í gær, en gat það ekki - vona ekki að það komi ekki að sök þó þetta komi einum degi of seint! Málavextir voru nefnilega þeir, að Maggi var að bora þumalputtanum sínum inn í upphandlegginn á mér, með þeim afleiðingum að mér er enn illt þar, og hann heimtaði að ég myndi blogga um þessar misþyrmingar hérna... Gjörðu svo vel Magnús minn - nú vita allir hversu mikill hrotti þú ert... *segir Hjördís og nuddar á sér auman handlegginn, sem er ENNÞÁ aumur frá því á laugardaginn...*

Allavega, veit ég hef slegið slöku við hérna....
Á laugardaginn fór ég á söngleikinn Sól og Mána, með Guggu systir og Þórdísi. Fannst hann alveg fínn - gaman að þekkja mörg laganna sem notuð voru. Eftir það, fór ég til Péturs, en hann hafði boðið okkur í matarboð. Ég auðvitað mætti seint, algjör dóni, en liðið var enn þarna í góðu fjöri!
Á sunnudaginn var Formúli pakki tekinn - og hver annar en minn maður Montoya sigraði! Húrra... loksins....

Hún Ragna Laufey min lenti heldur betur í hremmingum á laugardaginn. Hún var í mestu makindum að aka Reykjanesbrautina þegar jeppinn sem hún var að keyra valt nokkrar veltur! Hún bara skreið út um gluggann og ekkert amar að henni líkamlega! Algjör hetja.. Vegagerðin býr til hetjur úr smæsta fólki.... Frá Suðurnesjafréttum: "Um kl.14.00 í dag valt lítill jeppi einnig á Reykjanesbrautinni skammt frá Vogum. Bílstjórinn var þar líka einn á ferð og var fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar en að sögn lögreglu á slysstað er hann ekki talinn mikið slasaður." Maður fær náttúrulega ekkert lítinn sting í hjartað að heyra svona, en gott að það er í lagi með þig Ragna mín! Hér er annars fréttin með myndum og allt! Að þú skulir vera svo gott sem ómeidd...

Jæja, ætla í háttinn...