Veröld Fjördísar

laugardagur, desember 11, 2004

Þá vitiði það!

trouble
Þú ert Little Miss Trouble!


Which Little Miss are you?



Afskaplega hlakka ég til að sofa í mínu rúmi, maður sefur aldrei vel annars staðar, sérstaklega í einbreiðu rúmi kraminn upp við vegg.
Ég ákvað að gista hjá Irene í gær vegna þess að við og Morinoa (frá Japan, vinur hennar) fórum í Kalmar Nation í gærkveldi til að sjá hljómsveitina "Division of Laura Lee" spila. Komum frekar snemma, upphitunarsveitin "Sambassadeur" ekkert sérstök og of mikið af fólki. En Division stóð fyrir sínu - frábær skemmtun! Og þar sem strætóinn hættir að ganga á miðnætti þá gisti ég bara hjá henni.



Þetta eru við Irene (og Johan) um síðustu helgi í Stokkhólmi. Ekkert sérlega góð mynd neitt en jæja.

Annars var Hjalti Þór að gera mér ljótan grikk áðan. Segji frá honum á morgun og birti myndir af því... drengurinn gerði mér ansi bilt við verð ég að segja! Hrekkjusvín myndu sumir segja...